Sunnudagur, 23.12.2007
Galli að sjá ekki síðustu færslur
Svolítið slæmt fyrir mýfluguminni að hafa ekki síðustu færslur til hliðar eða neðan/ofan - máls og ef ég fer inn í færslulista og fletti þar og svo til baka, þá er horfið það sem ég var búinn að skrifa. nema muna að vista uppkastið - svolítið stúss
Palli
Laugardagur, 22.12.2007
Blogg & Berlín
Sælir félagar,
Ég mæli með að þið talið við börnin eða barnabörnin og látið þau kenna ykkur á bloggið, Því flestir unglingar nota þetta daglega og fyrir þeim er þetta eins og tala í síma.
En varðandi Berlínarferðina þá eru enn laus um 30 sæti , og meldingar eru smá saman að mjatlast inn. Það styttist óðum í að við þurfum að staðfesta fjöldann, bóka flug og hótel, og vil ég því aftur minna menn á að tilkynna hvort þeir ætla að koma með eða ekki því tíminn líður hratt þessa dagana.
Jólakveðja!Kristjan
.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22.12.2007
Bloggsíðan ekki nógu notendavæn
Sæli Tobbi, Kristján og Helgi.
Mér sýnist þið vera einu mennirnir sem kunnið almennilega á bloggið. Ég var núna til dæmis nokkurn tíma að finn "SKRIFA FÆRSLU" Þetta á að vera mun aðgengilegra þegar maður er búinn að setja inn leyninafnið. Ég mundi henda út fullt af letri sem er út um allt á síðunni og ruglar þá sem hafa það ekki að atvinnu sinni að horfa á tölvuskjá.
Varðandi framhald á söng þá er næsta verkefni jólamessan í Brautarholtskirkju kl. 5 og við ætlum að mæta kl. 4,15 tilbúnir að renna yfir hana og hita aðeins raddböndin. Meira held ég að sé ekki á þessu ári nema eitthvað nýtt komi upp.
Þessi mynd frá söng kórsins á Hrafnistu í Reykjavík er skemmtileg og frábært ef menn senda inn á netið hvað kórinn er að gera og tala nú ekki um ef það er eins fallegt eins og að syngja fyrir gamla fólkið. Við fórum á fjórar stofnanir þennan dag - byrjuðum sem 25 manna kór - síðan 21 eins og myndin sýnir og á síðasta staðnum vorum við 3faldur kvartet. Gylfi stóð sig eins og hetja og var fyrir rest einn með allan annan bassa og fór létt með. Fékk smá dreitil á síðasta staðnum sem reyndist vera áttræðisafmæli hjá mætum vini Gylfa.
Núna var ég að leita að textanu "SENDA" og eftir vandlegan lestur skilst mér að vista og birta þýði einfaldlega að þetta fari inn á bloggið. Það þarf allavega að þjálfa sig í notkun á blogginu.
JÓLAKVEÐJUR TIL YKKAR ALLRA OG HITTUM HRESSIR OG KÁTIR Á NÝJÁRINU.
Palli
Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 236
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar