Mánudagur, 18.2.2008
Kórakvöld
Sælir,
Minni á kórakvöldið á laugardagskvöldið næsta. Þar fáum við kór hreppamanna, Mosfellskórinn og Álafosskórinn í heimsókn.
Um kvöldið þegar söngurinn er búinn að ná hámarki, tekur við hljómsveitin Bob Gyllan... man ekki allveg hvað hún heitir, en þetta er frábær hljómsveit úr Mosó.
Barinn verður af sjálfsögðu opinn og nú ætlum við að selja upp í Berlínarferðina!!
Við bjóðum uppá tertur, kökur, og smurbrauð og þurfum því að biðla til okkar betrihelminga í þeim efnum.
Kveðja,
Kristjan
Föstudagur, 15.2.2008
Berlín
Sælir,
Jæja nú styttist í Berlínarferðina. Eins og fram hefur komið þá verður Óttar Guðmundsson geðlæknir farastjórinn okkar. Helgi Björnsson Mun taka á móti okkur í sýnum húsakynnum og munum við syngja þar. Búið er að bóka veitingastaðinn Sachs á laugardagskvöldið en hann er sagður vera mjög góður.
Hérna er íslenskur kór í Þýskalandi sem við ættum auðveldlega að toppa ekki satt
Kveðja,
Kristjan
Mánudagur, 4.2.2008
e-mail addressur
Sælir félagar
það er tvennt sem mér finnst að eigi vera á þessu svæði okkar hér og það er félagalisti með góðum upplýsingum um hvern félaga og e-mail addressu. Hitt sem mér finnst ábótavant er staður fyrir midi skrár. Við þurfum að skoða þetta eitthvað.
Kveðja Egill Sveinjörn
Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar