Þriðjudagur, 5.8.2008
ATH! Nýtt blogg! Skógarhólar, Heiðarás og Heiðarbær!
Sælir kórfélagar. Nú stendur til að fara ríðandi á Skógarhóla og Heiðarbæ dagana 22. 24. ágúst nk. 22. ágúst. Lagt af stað um 14:00 frá Laxnesi í Mosfellsdal og riðið að Skógarhólum. Eftir það verður móttaka og almennileg söngvíxla í splunku nýju húsi Kolbeins Sveinbjörnssonar 2. tenórs og hans spússu en þau búa að Heiðarási í Þingvallasveit ( skammt frá Skálabrekku ). Kolbeinn hefur verið með yfirlýsingar um að hella upp á gestkomandi. Það er þá bara einn höfuðverkur og hann er sá að finna einhvern til að skutla mannskapnum frá Skógarhólum að Heiðarási
við finnum úr því en það fer að sjálfsögðu eftir fjölda þátttakenda. 23. ágúst.Lagt af stað frá Skógarhólum um 14:00. Riðið um sumarhúsabyggðir norðan Þingvallavatns og leitað eftir öli hjá íbúum sumarhúsanna. Þá verður riðið að Heiðarbæ þar sem Sveinbjörn Einarsson 2. bassi ætlar að taka á móti okkur og þá verður nú aldeilis sungið og trallað samkv. venju en veizlurnar hjá Sveinka hafa verið afar vel heppnaðar og rómaðar meðal okkar sem þangað hafa mætt. 24. ágúst.Komið sér heim með hestana frá Heiðarbæ J Ath.Endilega tilkynnið þátttöku, sendið skeyti og látið berast til kórfélaga því það vita ekki allir af þessum ferðum okkar. Annað, eitthvað þarf að borga fyrir hagabeit á Skógarhólum og verður hver og einn að gera upp fyrir sín hross þar, Guðný í Flekkudal er staðarhaldari þar.Sveinki hefur ekki rukkað fyrir beit hjá sér nema í formi gleði og söngs, eflaust verður sami háttur á nú sem fyrr J Kv.Nefndin( Tobbi 8920015, Bjössi 8923042 og hinn nýgifti Gvendur Sturlu ( vinsamlegast ónáðið hann ekki
) )

Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar