Leita í fréttum mbl.is

Nokkrir tónar...

Nú hafa þau sex lög sem tilbúin eru verið sett hér á síðuna. Einnig hafa verið virkjuð myndaalbúm. Sjálfsagt að bæta við fleiri myndum og albúmum.

Brunaútsala á léttvíni á æfingunni mánudag.

Sælir félagar,

Þar sem kórmeðlimir og makar þeirra er farnir að slaka verulega á í drykkjunni þá sitjum við upp með nokkrar vínflöskur.

Víninu er ekki hægt að skila þannig að við ætlum að bjóða það til sölu á góðu verði.

Á mánudagsæfingunni verður posi þannig að hægt verður að taka á móti kortagreiðslum, og þá einnig fyrir matnum fyrir þá sem gleymdu að gera hann upp Wink

Rauðvín Delicato Shiraz 2006 verð kr. 1500,- 

06401

 

 

 

 

 

 

Hvítvín Delicato Viognier Chardonnay 2006 verð kr. 1500,-

12194

 

 

 

 

 

P.s.

1. tenór sló rækilega í gegn á jólahlaðborðinu og þurfum við hinir verulega að taka okkur saman í andlitinu og fara að æfa númer fyrir næstu skemmtanir. 

 

Kveðja,

Kristjan 


Þakkir fyrir sönginn í gærkvöldi.

 

Sælir

Heilir og sælir

 Mig langar að þakka félögum Kjalnesingakórsins sem sungu fyrir heimilisfólkið Furugerði 1, mánudagskvöldið 8. des., þá vinsemd og virðingu sem þeir veittu móður minni Snúllu (Ingu Valfríði Einarsdóttur). 

Þið glödduð gömlu konuna ósegjanlega og hún var ekki á jörðinni þegar hún hringdi í mig í gærkvöldi til að segja mér frá þeim heiðri sem þið sýnduð henni og átti ekki orð til að lýsa því hve fallega þið sunguð " Þú komst í hlaðið á hvítum hesti" :-)  

 

Ég og fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og megi söngur ykkar og hlýhugur fara sem víðast.   Hjartans kveðja, Þura

 

_________________

Þuríður Sigurðardóttir

 

Kveðja,

Kristjan 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Karlablogg

Karlakór Kjalnesinga
stofnaður 1991

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband