Leita í fréttum mbl.is

ATH! Nýtt blogg! Skógarhólar, Heiðarás og Heiðarbær!

Sælir kórfélagar. Nú stendur til að fara ríðandi á Skógarhóla og Heiðarbæ dagana 22. – 24. ágúst nk. 22. ágúst. Lagt af stað um 14:00 frá Laxnesi í Mosfellsdal og riðið að Skógarhólum.  Eftir það verður móttaka og almennileg söngvíxla í splunku nýju húsi Kolbeins Sveinbjörnssonar 2. tenórs og hans spússu en þau búa að Heiðarási í Þingvallasveit ( skammt frá Skálabrekku ).  Kolbeinn hefur verið með yfirlýsingar um að hella upp á gestkomandi.  Það er þá bara einn höfuðverkur og hann er sá að finna einhvern til að skutla mannskapnum frá Skógarhólum að Heiðarási…… við finnum úr því en það fer að sjálfsögðu eftir fjölda þátttakenda. 23. ágúst.Lagt af stað frá Skógarhólum um 14:00.  Riðið um sumarhúsabyggðir norðan Þingvallavatns og leitað eftir öli hjá íbúum sumarhúsanna.  Þá verður riðið að Heiðarbæ þar sem Sveinbjörn Einarsson 2. bassi ætlar að taka á móti okkur og þá verður nú aldeilis sungið og trallað  samkv. venju en veizlurnar hjá Sveinka hafa verið afar vel heppnaðar og rómaðar meðal okkar sem þangað hafa mætt. 24. ágúst.Komið sér heim með hestana frá Heiðarbæ J Ath.Endilega tilkynnið þátttöku, sendið skeyti og látið berast til kórfélaga því það vita ekki allir af þessum ferðum okkar. Annað, eitthvað þarf að borga fyrir hagabeit á Skógarhólum og verður hver og einn að gera upp fyrir sín hross þar, Guðný í Flekkudal er staðarhaldari þar.Sveinki hefur ekki rukkað fyrir beit hjá sér nema í formi gleði og söngs, eflaust verður sami háttur á nú sem fyrr J Kv.Nefndin( Tobbi 8920015, Bjössi 8923042 og hinn nýgifti Gvendur Sturlu ( vinsamlegast ónáðið hann ekki Whistling ) ) 

Rífa kjaft.....

Já svona er maður, kem á örfáar æfingar á árinu og ríf svo bara kjaft...... en strákar..... Hermannakórinn er bara alls ekki að gera sig hjá kórnum og á alls ekkert erindi á tónleikapalla í vor, mögulega vorið 2009.  Það er ekkert gaman að hlusta eða horfa á kór sem á í vandræðum með sönginn.  Það er nú einu sinni þannig að kórmönnum er skipt niður í raddir eftir raddsviði og því ekki á færi allra að syngja hæstu tóna.  Hátt B er bara alls ekki á færi allra að syngja, hátt B er næsta nóta við háa C, ( hæsta nótan í Hermannakórnum ef ég man rétt er hátt B ( vinsamlega leiðréttið ef svo er ekki )), 2. ten liggur bara alls ekki á þessu tónsviði.  Þetta verður einhvern veginn svo djöfulli vandræðalegt og afturkreistingslegt þegar menn eru að rembast þetta og greinilegt að það er ekkert búið að æfa þetta lag að viti eða  svo er að heyra á nokkrum kórmönnum, ég er greinilega ekki sá eini sem hef lítið æft þetta lag.  Einnig hefur komið fram að ég er alls ekki sá eini sem er á móti því að syngja Hermannakórinn svona lítið æfðan. Ég amk þarf að vera á fullu blasti og hafa góð tök á laginu til að geta farið svona hátt og ég heyri það greinilega á félögum mínum að svo er einnig um þá.   Lagið er flott en  betur má ef duga skal.

 Ég mæli með því að stjórn og stjórnandi skoði þetta mál vel áður en lagaval og söngskrá verður gerð fyrir tónleikana því betra er heima setið en af stað farið ef hlutirnir eru ekki í lagi.

Tobbi 2. ten.


Jarðarfarasöngur

Sælir 

Jarðarförin á mánudaginn kemur  verður í Grafarvogskirkju og er mæting kl. 12.00 í dressinu. 

Lagalistinn er eftirfarandi. 

  • Hærra minn guð til þín 3 erindi
  • Drottinn er minn hirðir 
  • Í bljúgri bæn - einraddað
  • Allt eins og blómstrið Undir dalanna sól  -- Dúett   

Önnur jarðarför er svo á þriðjudeginum kl. 11 í Áskirkju. 

Þá er verið að jarða föður Arnar Harðars í 2 bassa.

Nánar rætt á æfingu næstkomandi mánudag.   

                                                                       

Kveðja Andri.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Karlablogg

Karlakór Kjalnesinga
stofnaður 1991

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband