Færsluflokkur: Menning og listir
Föstudagur, 22.2.2008
Kórakvöld
Sælir,
Annað kvöld eigum við von á 170 manns, þetta hefur víst sjaldan verðið eins fjölmennt á þessum skemmtunum okkar ef þessi fjöldi reynist réttur. Eins og kom fram á síðustu æfingu þá bjóðum við uppá kökur, brauð og tertur, ekkert verður keypt þannig það hvílir á okkur öllum að koma með ríflegan skammt til að svelta ekki mannskapinn. Eins verðum við sjálfir að vera penir á því og mæta afgangi ef veitingar virðast tæpar.
Sjáumst hressir á morgun!
Kveðja,
Kristjan
Miðvikudagur, 20.2.2008
Listi yfir þá sem koma með til Berlínar.
Hér eru upplýsingar um þá sem fara til Berlínar. Hverjir eru makar, símanúmer, heimilisföng og netföng.
Sjáið hér fyrir neðan.
Helgi P. 2.tenór
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19.2.2008
Aðstaðan okkar
Sælir félagar,
Byggingarnefndin er nú komin á fullt í að koma aðstöðunni okkar í gagnið, Síðasta laugardag var unnið við að rífa niður, en eftir því sem mér skilst þá fer uppbyggingin að hefjast strax um næstu helgi. Hér eru nokkrar myndir frá vettvagnskönnun í gærkvöldi. Þó að kosnir hafi verið menn í bygginganefnd þá er ekki þar með sagt að þeir eiga að vinna verkin, þess vegna verða menn vera tilbúnir að hjálpa til þegar til þeirra er leitað
Kveðja,
Kristjan
Menning og listir | Breytt 22.2.2008 kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 18.2.2008
Kórakvöld
Sælir,
Minni á kórakvöldið á laugardagskvöldið næsta. Þar fáum við kór hreppamanna, Mosfellskórinn og Álafosskórinn í heimsókn.
Um kvöldið þegar söngurinn er búinn að ná hámarki, tekur við hljómsveitin Bob Gyllan... man ekki allveg hvað hún heitir, en þetta er frábær hljómsveit úr Mosó.
Barinn verður af sjálfsögðu opinn og nú ætlum við að selja upp í Berlínarferðina!!
Við bjóðum uppá tertur, kökur, og smurbrauð og þurfum því að biðla til okkar betrihelminga í þeim efnum.
Kveðja,
Kristjan
Föstudagur, 15.2.2008
Berlín
Sælir,
Jæja nú styttist í Berlínarferðina. Eins og fram hefur komið þá verður Óttar Guðmundsson geðlæknir farastjórinn okkar. Helgi Björnsson Mun taka á móti okkur í sýnum húsakynnum og munum við syngja þar. Búið er að bóka veitingastaðinn Sachs á laugardagskvöldið en hann er sagður vera mjög góður.
Hérna er íslenskur kór í Þýskalandi sem við ættum auðveldlega að toppa ekki satt
Kveðja,
Kristjan
Þriðjudagur, 29.1.2008
Berlín
Sælir,
Hér koma upplýsingar um hótelið í Berlín. Óttar Guðmundsson verður okkar leiðsögumaður og munum við Helgi funda með honum fljótlega til að skipuleggja þetta nánar. Nánari fréttir af ferðinni birtast næstu daga.
Kveðja.
Kristjan
http://www.hotel-gates.com/en/home/
Fimmtudagur, 24.1.2008
Druslur
Sælir. Eru einhverjir ykkar sem þekkja druslur? Þá á ég við kveðskap í drusluhætti við sálmalög. Ef þið lumið á slíku þá endilega sendið mér það á netfangið emilia@centrum.is Ég er að taka saman í lítið kver sönglög á mannamótum, ýmisst sem kórmenn hafa sungið með kórnum og svo Druslurnar. Þetta er ég að gera til að koma í veg fyrir menn að séu alltaf að klæmast á sömu lögunum....... Einnig ef einhver ykkar er snillingur í Word, þá væri ég til í að heyra frá viðkomandi...
Kv.
Tobbi
Mánudagur, 14.1.2008
Heimasíðan
Sælir. Var að skoða heimasíðuna okkar eins og sjálfsagt einhverjir fleiri gera en þar er sem fyrr ekkert neitt nýtt að finna... við erum enn á leiðinni til Sveinka á Heiðarbæ samkv. dagsskránni... spurning hvort súpan sé ekki að vera vel soðin hjá kallinum
Ég var að skoða heimasíðuna hjá Karkakór Hreppamanna http://www.kkhreppamanna.com/ sem er til fyrirmyndar alveg. Er ekki komið að því að síðunefndin taki til starfa...
kv. Tobbi
Föstudagur, 11.1.2008
Berlínarferð 4-7 apríl.
Föstudagur, 11.1.2008
Berlínarferð 4-7 apríl.
Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar