Föstudagur, 1.6.2007
Hestaferðin 7-10 júní
Hina árlega kjósarreið Karlakórs Kjalnesinga verður dagana 7-10 júní. Gróf dagskrá er eftirfarandi:
- Fimmtudagur 7. júní: Miðað er við að menn komi héðan og þaðan í Varmadal um kl. 19. Þaðan verði lagt af stað um kl. 20 og riðið í Brautarholt.
- Föstudagur 8. júní: Lagt af stað frá Brautarholti um kl. 16. Riðin hefðbundin leið upp í Kjós og endað á Hjalla um kl. (ja, hvað veit maður, stundum um miðnætti, stundum heldur seinna)
- Laugardagur 9. júní: Lagt af stað í stuttan fjölskyldureiðtúr um kl. 13. Leikir og skemmtun fyrir börn og fullorðna að Hjalla, endað á grilli.
- Sunnudagur 10. júní. Þeir sem enn eru með hross á Hjalla, ríða heim á leið. Lagt af stað um kl. 13.
Eins og sjá má er þetta gróf dagskrá. Þeir sem hafa hugmyndir sem gætu auðgað hana er bent á að leggja orð í belg.
Bloggfærslur 1. júní 2007
Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar