Leita í fréttum mbl.is

Rífa kjaft.....

Já svona er maður, kem á örfáar æfingar á árinu og ríf svo bara kjaft...... en strákar..... Hermannakórinn er bara alls ekki að gera sig hjá kórnum og á alls ekkert erindi á tónleikapalla í vor, mögulega vorið 2009.  Það er ekkert gaman að hlusta eða horfa á kór sem á í vandræðum með sönginn.  Það er nú einu sinni þannig að kórmönnum er skipt niður í raddir eftir raddsviði og því ekki á færi allra að syngja hæstu tóna.  Hátt B er bara alls ekki á færi allra að syngja, hátt B er næsta nóta við háa C, ( hæsta nótan í Hermannakórnum ef ég man rétt er hátt B ( vinsamlega leiðréttið ef svo er ekki )), 2. ten liggur bara alls ekki á þessu tónsviði.  Þetta verður einhvern veginn svo djöfulli vandræðalegt og afturkreistingslegt þegar menn eru að rembast þetta og greinilegt að það er ekkert búið að æfa þetta lag að viti eða  svo er að heyra á nokkrum kórmönnum, ég er greinilega ekki sá eini sem hef lítið æft þetta lag.  Einnig hefur komið fram að ég er alls ekki sá eini sem er á móti því að syngja Hermannakórinn svona lítið æfðan. Ég amk þarf að vera á fullu blasti og hafa góð tök á laginu til að geta farið svona hátt og ég heyri það greinilega á félögum mínum að svo er einnig um þá.   Lagið er flott en  betur má ef duga skal.

 Ég mæli með því að stjórn og stjórnandi skoði þetta mál vel áður en lagaval og söngskrá verður gerð fyrir tónleikana því betra er heima setið en af stað farið ef hlutirnir eru ekki í lagi.

Tobbi 2. ten.


Bloggfærslur 15. apríl 2008

Karlablogg

Karlakór Kjalnesinga
stofnaður 1991

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband