Þriðjudagur, 15.4.2008
Rífa kjaft.....
Já svona er maður, kem á örfáar æfingar á árinu og ríf svo bara kjaft...... en strákar..... Hermannakórinn er bara alls ekki að gera sig hjá kórnum og á alls ekkert erindi á tónleikapalla í vor, mögulega vorið 2009. Það er ekkert gaman að hlusta eða horfa á kór sem á í vandræðum með sönginn. Það er nú einu sinni þannig að kórmönnum er skipt niður í raddir eftir raddsviði og því ekki á færi allra að syngja hæstu tóna. Hátt B er bara alls ekki á færi allra að syngja, hátt B er næsta nóta við háa C, ( hæsta nótan í Hermannakórnum ef ég man rétt er hátt B ( vinsamlega leiðréttið ef svo er ekki )), 2. ten liggur bara alls ekki á þessu tónsviði. Þetta verður einhvern veginn svo djöfulli vandræðalegt og afturkreistingslegt þegar menn eru að rembast þetta og greinilegt að það er ekkert búið að æfa þetta lag að viti eða svo er að heyra á nokkrum kórmönnum, ég er greinilega ekki sá eini sem hef lítið æft þetta lag. Einnig hefur komið fram að ég er alls ekki sá eini sem er á móti því að syngja Hermannakórinn svona lítið æfðan. Ég amk þarf að vera á fullu blasti og hafa góð tök á laginu til að geta farið svona hátt og ég heyri það greinilega á félögum mínum að svo er einnig um þá. Lagið er flott en betur má ef duga skal.
Ég mæli með því að stjórn og stjórnandi skoði þetta mál vel áður en lagaval og söngskrá verður gerð fyrir tónleikana því betra er heima setið en af stað farið ef hlutirnir eru ekki í lagi.
Tobbi 2. ten.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það fer nú hver að verða síðastur að ákveða lagavalið. Sammála Tobba um að lög sem ekki eru að gera sig rúmri viku fyrir tónleika, eiga lítið erindi á þá.
kv
Halli
Þórhallur Guðlaugsson (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 14:51
Við raddæfðum þetta í gær fimmtudag það hefði verið gaman að sjá ALLA á þeirri æfingu. Þar var einungis þetta tiltekna lag æft og snúið ofanaf þeim villum sem þar voru. Varðandi háu nóturnar var okkur uppálagt að sleppa þeim í 2.tenór. Ég held nú að lagið þýska þú, þú liggur mér á hjarta sé nú hættulegra.
Helgi Palsson (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.