Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Hvernig gera menn sem ætla að blogga

Ég var smá stund að fatta hvernig maður átti að komast inn á þessa síðu til að blogga.Við fengu jú í pósti orðið  sem veitti okkur aðganginn að síðunni en það hefur ekki verið minnst á notendanafnið, eða hvað?  missti  ég kannski af því.  Ég varð að dýrka það upp.  Þarf ekki að senda í pósti til allra hvernig menn gera til að nota þessa síðu ´"rétt".  Ég sá nefninlega í athugasemd varðandi skrif hjá Tobba var:

Athugasemdir

1

Sælir félagar,

Ég er að reyna að átta mig á notkun bloggsíðunnar okkar.  Þetta mun vera í fyrsta skipti sem ég reyni slíkt.  Sjá hvort þetta virkar!!!

Páll Helgason (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 00:10

En men átta sig á hvernig á gera ath-semdir en ekki hvernig á að starta nýju bloggi.

Kærar kveðjur til allra.

Helgi Pálsson 2tenór


Veðrið næstu helgi

Komið þið sæl/ir.

Ég var að kíkja á veðurspárnar fyrir næstu helgi, þetta eru fremur bágbornar spár en þó ekki fyrir okkur "Kjalnesinga" sem erum öllu vanir/vön.  Reyndar eru talsverðar líkur á að spáin breytist okkur í hag, ég þarf bara að gefa nýjum skipuleggjendum ferðarinnar nokkur hint til veðurguðanna og vona að þeir nái sama samkomulagi og við sem áður skipulögðum þessar ferðir.


En,  það hefur aðeins verið spurt hvernig háttar hér á Brautarholti varðandi að geyma hrossin frá fimmtudagskvöldinu fram á föstudag.  Hér er hægt að geyma hrossin gegn vægu gjaldi, ( einn bjór á hvert tamið hross en tveir bjórar á ómtain hross :) )  Nei nei, grín, ekkert mál að geyma hrossin hér hjá okkur, við Gvendur Sturlu og Björn ætlum að reka inn í gerðið um hádegisbil á föstudeginum þannig að hrossin verði ekki pakksödd af áti þegar lagt verður íann um 16:00 eða svo.

Bestu kveðjur,

Tobbi.


Hestaferðin 7-10 júní

Hina árlega kjósarreið Karlakórs Kjalnesinga verður dagana 7-10 júní. Gróf dagskrá er eftirfarandi:

  • Fimmtudagur 7. júní: Miðað er við að menn komi héðan og þaðan í Varmadal um kl. 19. Þaðan verði lagt af stað um kl. 20 og riðið í Brautarholt.
  • Föstudagur 8. júní: Lagt af stað frá Brautarholti um kl. 16. Riðin hefðbundin leið upp í Kjós og endað á Hjalla um kl. (ja, hvað veit maður, stundum um miðnætti, stundum heldur seinna)
  • Laugardagur 9. júní: Lagt af stað í stuttan fjölskyldureiðtúr um kl. 13. Leikir og skemmtun fyrir börn og fullorðna að Hjalla, endað á grilli.
  • Sunnudagur 10. júní. Þeir sem enn eru með hross á Hjalla, ríða heim á leið. Lagt af stað um kl. 13.

Eins og sjá má er þetta gróf dagskrá. Þeir sem hafa hugmyndir sem gætu auðgað hana er bent á að leggja orð í belg.


Karlablogg

Karlakór Kjalnesinga
stofnaður 1991

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband