Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Berlín

Sælir,

Hér koma upplýsingar um hótelið í Berlín. Óttar Guðmundsson verður okkar leiðsögumaður og munum við Helgi funda með honum fljótlega til að skipuleggja þetta nánar. Nánari fréttir af ferðinni birtast næstu daga.

Kveðja.

Kristjan

 http://www.hotel-gates.com/en/home/

Knesebeckstraße 8-9 D-10623 Berlin T:+49 (0)30 / 31106-0   F: +49 (0)30 / 3122060  E-Mail: info@hotel-gates.com

hótel gates

Druslur

Sælir.  Eru einhverjir ykkar sem þekkja druslur?  Þá á ég við kveðskap í drusluhætti við sálmalög.  Ef þið lumið á slíku þá endilega sendið mér það á netfangið emilia@centrum.is  Ég er að taka saman í lítið kver sönglög á mannamótum, ýmisst sem kórmenn hafa sungið með kórnum og svo Druslurnar.  Þetta er ég að gera til að koma í veg fyrir menn að séu alltaf að klæmast á sömu lögunum....... Einnig ef einhver ykkar er snillingur í Word, þá væri ég til í að heyra frá viðkomandi...

Kv.
Tobbi

Heimasíðan

Sælir.  Var að skoða heimasíðuna okkar eins og sjálfsagt einhverjir fleiri gera en þar er sem fyrr ekkert neitt nýtt að finna...  við erum enn á leiðinni til Sveinka á Heiðarbæ samkv. dagsskránni... spurning hvort súpan sé ekki að vera vel soðin hjá kallinum W00t

Ég var að skoða heimasíðuna hjá Karkakór Hreppamanna  http://www.kkhreppamanna.com/ sem er til fyrirmyndar alveg.   Er ekki komið að því að síðunefndin taki til starfa...

kv. Tobbi

Berlínarferð 4-7 apríl.

Ég vil minna á að það þarf að skila upplýsingum um kortanúmer og annað ekki seinna en á fyrstu æfingu 14 janúar 2008, við þurfum að borga inná ferðina 16 jan.  Menn þurfa að athuga með ferðatryggingar.  Eyðublað til að fylla út hafa menn fengið á e-mail frá Kristjáni.  Einnig heimsótti ég raddæfingar í gær (fimmtudag) og dreifði þessum blöðum.  Að sjálfsögðu geta menn einnig hringt í Iceland Express og gefið þeim þessar upplýsingar beint en það má þá ekki gleymast og væri fínt að menn létu mig vita (hp@rafteikning.is).  1 tenór er á raddæfingu á laugardaginn hjá pabba og kem ég til með að heimsækja þá.

Karlablogg

Karlakór Kjalnesinga
stofnaður 1991

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband