Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
Miðvikudagur, 31.12.2008
Gleðilegt nýtt ár!
Miðvikudagur, 24.12.2008
Gleðileg jól
Sunnudagur, 14.12.2008
Nokkrir tónar...
Laugardagur, 13.12.2008
Brunaútsala á léttvíni á æfingunni mánudag.
Sælir félagar,
Þar sem kórmeðlimir og makar þeirra er farnir að slaka verulega á í drykkjunni þá sitjum við upp með nokkrar vínflöskur.
Víninu er ekki hægt að skila þannig að við ætlum að bjóða það til sölu á góðu verði.
Á mánudagsæfingunni verður posi þannig að hægt verður að taka á móti kortagreiðslum, og þá einnig fyrir matnum fyrir þá sem gleymdu að gera hann upp
Rauðvín Delicato Shiraz 2006 verð kr. 1500,-

Hvítvín Delicato Viognier Chardonnay 2006 verð kr. 1500,-
P.s.
1. tenór sló rækilega í gegn á jólahlaðborðinu og þurfum við hinir verulega að taka okkur saman í andlitinu og fara að æfa númer fyrir næstu skemmtanir.
Kveðja,
Kristjan
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9.12.2008
Þakkir fyrir sönginn í gærkvöldi.
Sælir
Heilir og sælir
Mig langar að þakka félögum Kjalnesingakórsins sem sungu fyrir heimilisfólkið Furugerði 1, mánudagskvöldið 8. des., þá vinsemd og virðingu sem þeir veittu móður minni Snúllu (Ingu Valfríði Einarsdóttur).
Þið glödduð gömlu konuna ósegjanlega og hún var ekki á jörðinni þegar hún hringdi í mig í gærkvöldi til að segja mér frá þeim heiðri sem þið sýnduð henni og átti ekki orð til að lýsa því hve fallega þið sunguð " Þú komst í hlaðið á hvítum hesti" :-)
Ég og fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og megi söngur ykkar og hlýhugur fara sem víðast. Hjartans kveðja, Þura
_________________
Þuríður Sigurðardóttir
Kveðja,
Kristjan
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 7.12.2008
Jólahlaðborð Karlakórs Kjalnesinga 12 Desember
Mæting kl: 19:30
Borðhald hefst klukkan 20:30
Matseðill:
Heilsteikt svínalæri með puru og
Grillaðar kalkúna bringur með rjómapúrtvíns sósu.
Meðlæti:
Rauðkál,eplasalat,gularbaunir
léttristað grænmeti,ferskt jólasalat
og sykurbrúnaðar kartöflur
21:30 Upplestur og skemmtiatriði með hefbundnu sniði frameftir kvöldi.
P.s. Heyrst hefur að ný eldheit hljómsveit slái upp balli seinna um kvöldið!
Verð kr. 3500,- pr mann Rauðvín og Hvítvín selt í heilum flöskum á vægu verði.
Stjórnin
Menning og listir | Breytt 8.12.2008 kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar