Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Ríðum sem fjandinn!

Enn er mikill áhugi á myndbandi kórsins við lagið Ríðum sem fjandinn. Nú hafa 23.400 séð myndbandið.

Glaðningur gleður!

Myndband Karlakórs Kjalnesinga á YouTube virðist mjög vinsælt en nú hafa 5.348 séð þetta myndband. Þar sem hver tölva er aðeins talin einu sinni þá má gera ráð fyrir að mun fleiri einstaklingar hafi séð myndbandið.

Myndbandið má sjá hér.


Nú styttist í gleðina!

Nú styttist í að Karlakór Kjalnesinga hefji vetrarstarfið. Eins og áður þá eru áhugasamir karlmenn um kórsöng hvattir til að láta slag standa og skrá sig í raddpróf. Pláss er í öllum röddum.

Áhugasamir hafi samband við formann kórsins, Guðmund Guðlaugsson eða stjórnandann, Pál Helgason

Gamlir félagar eru hvattir til að láta sjá sig á æfingum.


Glaðningur

Nýjustu afurð Karlakórs Kjalnesinga, Glaðnings, hefur verið vel tekið en fyrsta upplag er nú uppurið. Á síðunni hér til hliðar er hægt að hlusta á nokkur tóndæmi en á disknum eru þekkt dans- og sönglög.

Áhugasamir geta pantað diskinn á www.karlakor.is eða með því að senda póst á karlakor@karlakor.is

 


Nýjar myndir...

...eru undir möppunni Útgáfutónleikar

Vel heppnaðir útgáfutónleikar

Útgáfutónleikar Karlakórs Kjalnesinga voru vel sóttir en segja má að Digraneskirkja hafi verið yfirfull. Tónleikagestir tóku kórnum vel og var gerður góður rómur að frammistöðu kórsins, einsöngvara og hljómsveitarinnar.

Að þessu sinni voru tónleikarnir tileinkaðir útgáfu þriðja geisladisks kórsins, Glaðnings. Þeir sem ekki komust á tónleikana geta pantað diskinn hér.


Ný heimasíða

Karlakór Kjalnesinga hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin er:

 karlakor.is


Árshátíðin

Eins og alþjóða veit hélt Karlakór Kjalnesinga sína árlegu árshátíð sl. laugardagskvöld. Að venju var gleðin mikil og meiri hjá sumum en öðrum. Á meðfylgjandi skrám má sjá betri helming kórsins taka lagið sem og heiðursfélagann Árna.

Athugið að best er að nota VLC media player


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Söngveisla

Mogginn birtir:

Þrír karlakórar héldu sönghátíð í Félagsheimilinu á Flúðum sl. laugardagskvöld fyrir fullu húsi. Um var að ræða Karlakór Hreppamanna, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og Karlakór Kjalnesinga. Kórarnir sungu hver í sínu lagi en síðan saman sjö lög. Undirtektir áheyrenda voru mjög góðar og ánægja með að fá í heimsókn kóra til að syngja með Karlakór Hreppamanna sem telur nú um 60 manns. (sjá mynd í albúmi)


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Dagskrá Karlakórs Kjalnesinga

Dagskrá vorið 2009

 

21. febrúar laugardagur

  • Æfingadagur Tónlistarskólanum Mosfellsbæ kl. 9.30-15
  • Mæting að Flúðum ekki seinna en 18.30. Hreppamenn bjóða upp á hressingu og farið yfir sameiginleg lög.
  • Tónleikar kl. 20.30, kórklæðnaður, með Karlakór Hreppamanna og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps.
  • Menningardagskrá fram eftir kvöldi!

27. febrúar föstudagur
  • Söngur til styrktar Rebekku Önnu Allwood í Ásláki Mosfellsbæ kl. 20.30


28. febrúar laugardagur

  • Söngur á árshátíð Hestamannafélagsins Harðar í Hlégarði kl. 20 (óstaðfest)

 
7. mars laugardagur

  • Upptaka í Fella og Hólakirkju
  • Mæting 9:30
  • Skemmtun um kvöldið í Harðarbóli

 
4. apríl laugardagur

  • Tónleikar með Skólahljómsveit Mosfellsbæjar Íþróttahúsinu að Varmá kl. 14 (valkvætt)
  • Æfing 28.3. kl. 13 og 2.4. kl. 20.


30. apríl fimmtudagur

  • Lokaæfing með hljómsveit og einsöngvurum, Digraneskirkja kl. 20.

2. maí laugardagur
  • Útgáfutónleikar í Digraneskirkju kl 16.00
  • Mæting kl 14.30
  • Lokahóf um kvöldið

 

Endilega setjið þessar dagsetningar inn í dagbókina og í tölvuna!

 

Með fyrirvara um breytingar- Stjórnin


Næsta síða »

Karlablogg

Karlakór Kjalnesinga
stofnaður 1991

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 236

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband