Færsluflokkur: Menning og listir
Miðvikudagur, 31.12.2008
Gleðilegt nýtt ár!
Miðvikudagur, 24.12.2008
Gleðileg jól
Sunnudagur, 14.12.2008
Nokkrir tónar...
Laugardagur, 13.12.2008
Brunaútsala á léttvíni á æfingunni mánudag.
Sælir félagar,
Þar sem kórmeðlimir og makar þeirra er farnir að slaka verulega á í drykkjunni þá sitjum við upp með nokkrar vínflöskur.
Víninu er ekki hægt að skila þannig að við ætlum að bjóða það til sölu á góðu verði.
Á mánudagsæfingunni verður posi þannig að hægt verður að taka á móti kortagreiðslum, og þá einnig fyrir matnum fyrir þá sem gleymdu að gera hann upp
Rauðvín Delicato Shiraz 2006 verð kr. 1500,-

Hvítvín Delicato Viognier Chardonnay 2006 verð kr. 1500,-
P.s.
1. tenór sló rækilega í gegn á jólahlaðborðinu og þurfum við hinir verulega að taka okkur saman í andlitinu og fara að æfa númer fyrir næstu skemmtanir.
Kveðja,
Kristjan
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9.12.2008
Þakkir fyrir sönginn í gærkvöldi.
Sælir
Heilir og sælir
Mig langar að þakka félögum Kjalnesingakórsins sem sungu fyrir heimilisfólkið Furugerði 1, mánudagskvöldið 8. des., þá vinsemd og virðingu sem þeir veittu móður minni Snúllu (Ingu Valfríði Einarsdóttur).
Þið glödduð gömlu konuna ósegjanlega og hún var ekki á jörðinni þegar hún hringdi í mig í gærkvöldi til að segja mér frá þeim heiðri sem þið sýnduð henni og átti ekki orð til að lýsa því hve fallega þið sunguð " Þú komst í hlaðið á hvítum hesti" :-)
Ég og fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og megi söngur ykkar og hlýhugur fara sem víðast. Hjartans kveðja, Þura
_________________
Þuríður Sigurðardóttir
Kveðja,
Kristjan
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 7.12.2008
Jólahlaðborð Karlakórs Kjalnesinga 12 Desember
Mæting kl: 19:30
Borðhald hefst klukkan 20:30
Matseðill:
Heilsteikt svínalæri með puru og
Grillaðar kalkúna bringur með rjómapúrtvíns sósu.
Meðlæti:
Rauðkál,eplasalat,gularbaunir
léttristað grænmeti,ferskt jólasalat
og sykurbrúnaðar kartöflur
21:30 Upplestur og skemmtiatriði með hefbundnu sniði frameftir kvöldi.
P.s. Heyrst hefur að ný eldheit hljómsveit slái upp balli seinna um kvöldið!
Verð kr. 3500,- pr mann Rauðvín og Hvítvín selt í heilum flöskum á vægu verði.
Stjórnin
Menning og listir | Breytt 8.12.2008 kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 12.10.2008
Vortónleikar 2000
Á spilaranum má nú heyra nokkur lög frá því á vortónleikum kórsins vorið 2000. Tónleikarnir voru teknir upp í Ými og er þar að finna skemmtilega blöndu af léttum dægurlögum og frekar þungum verkum fyrir fullvaxna karlakóra.
Meðal laga eru Dalakofinn, Frelsi ég finn (uppáhaldslag formanns ef rétt er munað), Svörtu skipin, Ólafur Tryggvason, Brennið þið vitar og Kvöldblíðan lognværa.
Þegar upptaka helgarinnar verður til er upplagt að setja hana hér inn.
Föstudagur, 5.9.2008
Prógramm?
Sælir. Geta stjórnarmenn eða kórstjóri sett fram lagalista fyrir komandi vetur, hér á bloggið. Það væri gaman að sjá hann ef þetta liggur fyrir að einhverju leiti.
Kv. Tobbi
Þriðjudagur, 5.8.2008
ATH! Nýtt blogg! Skógarhólar, Heiðarás og Heiðarbær!

Þriðjudagur, 15.4.2008
Rífa kjaft.....
Já svona er maður, kem á örfáar æfingar á árinu og ríf svo bara kjaft...... en strákar..... Hermannakórinn er bara alls ekki að gera sig hjá kórnum og á alls ekkert erindi á tónleikapalla í vor, mögulega vorið 2009. Það er ekkert gaman að hlusta eða horfa á kór sem á í vandræðum með sönginn. Það er nú einu sinni þannig að kórmönnum er skipt niður í raddir eftir raddsviði og því ekki á færi allra að syngja hæstu tóna. Hátt B er bara alls ekki á færi allra að syngja, hátt B er næsta nóta við háa C, ( hæsta nótan í Hermannakórnum ef ég man rétt er hátt B ( vinsamlega leiðréttið ef svo er ekki )), 2. ten liggur bara alls ekki á þessu tónsviði. Þetta verður einhvern veginn svo djöfulli vandræðalegt og afturkreistingslegt þegar menn eru að rembast þetta og greinilegt að það er ekkert búið að æfa þetta lag að viti eða svo er að heyra á nokkrum kórmönnum, ég er greinilega ekki sá eini sem hef lítið æft þetta lag. Einnig hefur komið fram að ég er alls ekki sá eini sem er á móti því að syngja Hermannakórinn svona lítið æfðan. Ég amk þarf að vera á fullu blasti og hafa góð tök á laginu til að geta farið svona hátt og ég heyri það greinilega á félögum mínum að svo er einnig um þá. Lagið er flott en betur má ef duga skal.
Ég mæli með því að stjórn og stjórnandi skoði þetta mál vel áður en lagaval og söngskrá verður gerð fyrir tónleikana því betra er heima setið en af stað farið ef hlutirnir eru ekki í lagi.
Tobbi 2. ten.
Nýjustu færslur
- 29.7.2010 Ríðum sem fjandinn!
- 13.12.2009 Glaðningur gleður!
- 9.8.2009 Nú styttist í gleðina!
- 25.5.2009 Glaðningur
- 24.5.2009 Nýjar myndir...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar